01.02.2017
Fræðslufundur fyrir foreldra/forráðamenn um læsi barna
Fundurinn verður haldinn:
fimmtudaginn 9. febrúar kl. 17.30-18.30 í Blönduskóla.
Læsisráðgjafar Menntamálastofnunar
munu sjá um fræðsluna.
Foreldrar/forráðamenn
eru hvattir til að koma og eiga notalega stund á fræðslufundinum. Heitt á
könnunni.
Lesa meira
14.12.2016
Litlu jólin
verða 20. desember þá mæta allir nemendur í skólann kl. 10:00 með skólabílum.
Skemmtiatriði
hefjast klukkan 13:30 og eru foreldrar, nánustu ættingjar sem og aðrir
velunnarar skólans velkomnir.
Nemendur í
1.- 6. bekk fara heim með skólabílum eða foreldrum að lokinni dagskrá eða um
kl. 15:30.
Jólasamvera
fyrir 7.-10. bekk stendur til klukkan 20.00.
Kennsla
hefst að loknu jólafríi miðvikudaginn 4. janúar samkvæmt stundaskrá.
Lesa meira
05.12.2016
Tónleikarnir verða haldnir miðvikudaginn 14. desember í
Húnavallaskóla og hefjast kl. 15:30. Foreldrar og aðrir gestir eru velkomnir.
Kennarar Tónlistarskóla Austur-Húnvetninga
Lesa meira
02.12.2016
Rauði krossinn stendur fyrir átakinu „Vertu næs“ en markmið
þess er að hvetja landsmenn til að bera virðingu fyrir náunganum, sama hvaðan
hann er upprunninn.
Mánudaginn 28. nóvember hlýddu nemendur í 7.-10 bekk á fræðsluerindi
á vegum átaksins en það voru þau Aleksandra Chlipala og Juan Camilo sem sáu um
fræðsluna. Í erindinu er leitast við að svara því hvort fordómar gagnvart
innflytjendum þrífist í okkar litla samfélagi og hvort að við höfum undirbúið
jarðveginn þannig að fjölbreytileikinn dafni og allir fái að njóta sín jafnt.
Lesa meira
22.11.2016
Árshátíð Húnavallaskóla verður haldin
föstudaginn 25. nóvember kl.
20:30.
Húsið opnað kl.
20:00
Fjölbreytt
skemmtiatriði:
Leiksýningar og
tónlistaratriði.
9. og 10.
bekkingar frumflytja leikritið Vistin eftir Guðjón Sigvaldason sem leikstýrir
einnig.
Eftir
skemmtiatriðin verður okkar rómaða veislukaffi.
Svo verður dansað
til kl. 01:00
DJ Heisi&Danni
sjá um fjörið
Miðaverð
(innifalið er kaffihlaðborð):
2500 kr. fyrir 16
ára og eldri
1000 kr. fyrir
7-15 ára.
Frítt fyrir 6 ára
og yngri.
Skólablaðið Grettistak
verður selt á staðnum á 1200
kr.
Ath. ekki er tekið
við greiðslukortum
9. og 10. bekkur
Húnavallaskóla
Lesa meira
18.11.2016
Allt skólahald fellur niður í dag vegna veðurs
og ófærðar bæði í leik- og grunnskóla.
Kveðja skólastjóri.
Lesa meira
16.11.2016
Kæru foreldrar / forráðamenn
Skólahald fellur niður í Húnavallaskóla (
leik- og grunnskóla ) á morgun fimmtudag(17. nóv.) vegna slæms veðurútlits.
Kveðja, skólastjóri
Lesa meira
01.11.2016
Þjóðleikhúsið bauð 5,6 og 7 ára nemendum á
leiksýninguna „Lofthræddi örninn Örvar“ í Félagsheimilinu á Blönduósi. Við
þáðum það boð og skemmtu nemendur sér vel.
http://listfyriralla.is/event/lofthraeddi-orninn-orvar/
Lesa meira
26.10.2016
Föstudaginn n.k. verður spilakvöld í Húnavallaskóla. Spiluð verður félagsvist og inn kostar 500 krónur. Verðlaun fyrir stigahæstu spilara. Byrjað verður að spila klukkan 20:00. Sjoppa verður á staðnum og vonumst við til að sjá sem flesta.
9. og 10. bekkur
Húnavallaskóla.
Ath. enginn posi
Lesa meira