Eins og komið hefur fram í fjölmiðlum í gær hefur heilbrigðisráðherra ákveðið að virkja heimildir sóttvarnalaga sem felur m.a. í sér að skólahald verður takmarkað tímabundið. Nánari útfærslur verða unnar samkvæmt tilmælum stjórnvalda.
Skólastjóri ásamt sveitarstjórn Húnavatnshrepps vinna nú að skipulagningu skólastarfs m.v. ofangreindar ákvarðanir. Þegar hefur verið ákveðið að mánudaginn 16.mars verði starfsdagur í Húnavallaskóla og leikskólanum Vallabóli, til þess að stjórnendur og starfsmenn geti skipulagt skólastarfið sem best á þessu tímabili sem takmörkunin nær til.
Foreldrar leik- og grunnskólabarna eru beðnir um fylgjast vel með upplýsingum sem birtast munu um helgina og á mánudaginn m.a. á heimasíðu sveitarfélagsins og heimasíðum grunn- og leikskóla.
Skólastjóri
Húnavatnshrepp 541 Blönduós Sími á skrifstofu: 455 0020 Netfang: skolastjori@hunavallaskoli.is |
Skrifstofa skólans er opin frá |
Er í vinnslu
Tilkynningar um leyfi eða veikindi nemenda: 455 0020 / skolastjori@hunavallaskoli.is